Slæmt ástand á Keflavíkurflugvelli 16. febrúar 2005 00:01
Fjöldi manns bíður um borð í millilandaflugvélum við Flugstöðina á Keflavíkurflugvelli þar sem flugmenn leggja ekki í hann vegna vinds og blindu á vellinum. Sjálfar brautirnar eru hins vegar í lagi. Fraktvél frá Flugleiðum komst í loftið snemma í morgun eftir að flugmennirnir höfðu beðið í nokkra stund á flugbrautinni og sættu lagi þegar veðrið dúraði aðeins. Um svipað leyti lenti líka vél að vestan og gat ekið að flugstöðinni, en skömmu síðar lenti önnur vél að vestan og þurftu farþegar að sitja í henni í tvær og hálfa klukkustund eftir lendingu þar sem ekki þótti hættandi á að aka henni upp að landganginum. Var loks brugðið á það ráð að skýla vélinni með stórum slökkvibílum og komst hún þá að landgangi. Fjórar Flugleiðavélar bíða enn við flugstöðina en fyrir stundu var Kaupmannahafnarvélinni ekið út á braut og ætla flugmenn að freista flugtaks. Sömuleiðis er vél Iceland Express komin út á braut. Spáð er illviðri fram yfir hádegi og óljóst hvenær vélarnar komast í loftið en ljóst er að millilandaflug er allt úr skorðum gengið. Þá hafa hvorki Landsflug né Flugfélag Íslands flogið innanlandsflug í morgun en verið er að kanna skilyrði þessa stundina.
Fréttir Innlent Mest lesið Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Innlent Gunnar lögmaður: „Ég er rosalega vinsæll á meðal Albananna“ Innlent Eldri kona stórslösuð og vitni gefa sig fram Innlent Alvarlegt slys á Suðurlandsbraut Innlent Lífið gjörbreytt Innlent Elsti Íslendingurinn er látinn Innlent „Þetta er stórkostlegt vandamál fyrir Íslendinga“ Innlent Fólk farið að reykja kókaínið Innlent Ráðherra bað skólameistara afsökunar sem klóra sér enn í kollinum Innlent Halla Bergþóra sækir um en ekki Páley Innlent Fleiri fréttir Eftirför lögreglu yfir Hellisheiðina Sextán ára martröð strætóbílstjóra í Reykjanesbæ Slökkvilið kallað út vegna ammoníakleka Ummæli Þórunnar dapurleg Margt sem gildir enn í samstarfi Íslands og Bandaríkjanna Fólk farið að reykja kókaínið Kókaínreykingar algengari, vonbrigði í vegagerð og háskaleg eftirför lögreglu Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Taldi brúðkaup í Keníu ekki telja og krefst ógildingar Slökktu eld á Stórhöfða Ráðherra bað skólameistara afsökunar sem klóra sér enn í kollinum Elsti Íslendingurinn er látinn Eldri kona stórslösuð og vitni gefa sig fram Halla Bergþóra sækir um en ekki Páley Hafnarfjörður mátti ekki afturkalla ráðningu Óskars Steins Gunnar lögmaður: „Ég er rosalega vinsæll á meðal Albananna“ Furðar sig á uppbyggingu við inngang þjóðgarðsins Grindvíkingar fái að velja hvar þeir kjósa „Auðvitað er forgangsröðun jarðganga vonbrigði fyrir mig“ „Þetta er stórkostlegt vandamál fyrir Íslendinga“ Ekki búið að bera kennsl á þann sem ekið var á Uggur í læknum og samtöl við Norðurlönd nauðsynlegt Fóru ekki fram á lengra varðhald yfir lögmanninum Áhyggjufullir læknar Hlaup hafið í Skaftá Alvarlegt slys á Suðurlandsbraut Lífið gjörbreytt Grindvíkingar hugsa um að fara heim: Gott að vera í Grindavík en verður aldrei eins Króuðu stolinn bíl af í Kömbunum eftir eftirför þvert yfir Hellisheiði Hjólreiðamaður fluttur „mikið slasaður“ með sjúkraflugi Sjá meira