Ráðuneyti og Alcoa áfrýja bæði 12. janúar 2005 00:01
Umhverfisráðuneytið og Alcoa á Íslandi hafa ákveðið að áfrýja dómi héraðsdóms vegna álversins í Reyðarfirði til Hæstaréttar. Ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytis telur dóminn rangan. Tómas Sigurðsson, framkvæmdastjóri Alcoa á Íslandi, segir að farið verði ítarlega yfir þá niðurstöðu héraðsdóms að álver Alcoa verði að fara í umhverfismat og að fyrirtækið ráðfæri sig við stjórnvöld um framhaldið. Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri í umhverfisráðuneytinu, segir að niðurstaða héraðsdóms komi á óvart. Umhverfisráðuneytið sé ósátt við niðurstöðuna og telji hana ranga og í samráði við ríkislögmann hafi verið ákveðið að áfrýja málinu til Hæstaréttar. Aðspurður hvað í niðurstöðunni hann telji rangt segir Magnús að Skipulagstofnun hafi á sínum tíma skoðað málið og hún hafi úrskurðað með því að bera saman það umhverfismat sem hafi legið fyrir fyrir 400 þúsund tonna álver og nýja álverið sem sé 320 þúsund tonn. Stofnunin hafi komist að þeirri niðurstöðu að áhrif breytingarinnar væru ekki svo mikil að það kallaði á nýtt umhverfismat. Þetta mat stofnunarinnar hafi verið byggt á sérfræðiáliti bestu stofnana samfélagsins. Magnús segist aðspurður ekki sjá að niðurstaðan hafi áhrif á framkvæmdir fyrir austan á þessu stigi málsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Erlent Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Lögregla eltist við afbrotamenn Innlent Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Innlent Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Innlent Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Erlent Fleiri fréttir Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Fimm handteknir grunaðir um skipulagðan þjófnað Ráðherra situr fyrir svörum, gleðitíðindi og konan sem hafði aldrei heyrt um handbolta Seinka sýningum fyrir leikinn Óbirt svör og starfslokin tekin fyrir Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Mikil andstaða við nýtt 160 herbergja hótel á Laugarvatni Á fjórða hundrað vilja á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Svona mun Suðurlandsbraut líta út Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Ljósið flytur í Grafarvog Launin lækkuð um 97 prósent en ekki afnumin „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Pallborðið: Aðstoðarmenn, bæjarstjóri og viðskiptafræðingur Sjá meira