Ígildi 57 bankagjaldkera 2. ágúst 2005 00:01
Ingvar Vilhjálmsson, forstöðumaður KB banka, er ígildi fimmtíu og sjö bankagjaldkera sé litið til upplýsinga í opinberum álgningarskrám. Bankagjaldkerar hafa að meðaltali eitthundrað og sjötíuþúsund krónur á mánuði, en forstöðumaðurinn hefur hinsvegar rúmar níu komma þrjár milljónir. Ingvar Vilhjálmsson seigr að upplýsingarnar séu rangar og hann hyggst hyggst kæra álagninguna. Rúmlega fjögur þúsund starfsmenn vinna í íslenskum bönkum, meðallaun karla eru þrjúhundruð og níutíu þúsund, meðallaun kvenna eru hinsvegar ekki nema tvöhundruð fjörutíu og þrjú þúsund. Það er því gríðarlegur munur á launum karla og kvenna í bönkunum. Gjaldkerar og bankaritarar eru lægst launuð með um eitthundrað og sjötíu þúsund krónur í meðaltekjur fyrir dagvinnu en eitthundrað áttatíu og þrjú þúsund í heildarlaun. Þessi stétt telur þó um fjögur til fimmhundruð bankamenn. Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri KB banka hefur sjö og hálfa milljón í laun á mánuði, samkvæmt Frjálsri Verslun og kollega hans í Íslandsbanka Bjarni Ármannsson, fimm komma þrjár. Þórður Már Jóhannesson forstjóri Straums fjárfestingarbanka hefur rúmar fjórar Og Guðmundur Hauksson sparisjóðsstjóri Spron þrjár komma níu. Friðbert Traustason segir að ofurlaunin séu afkomutengd og tengist yfirleitt verslun með verðbréf. Laun gjaldkera og þjónustufulltrúa séu hinsvegar til skammar. Hann segir þetta vera svipað erlendis þar sem þessar stéttir hafi líka lægstu launin og honum þykir það einkennilegt þar sem þessir starfsmenn eru fyrst og fremst andlit bankans út á við gagnvart viðskiptavinum. Friðbert Traustason segist hafa lagt fram drög að ályktun á þingi íslenskra bankamanna árið 1981, þar sem kom fram vilji til að launamunur yrði aldrei meira en fjórfaldur. Því hafi verið hafnað enda hafi það þótt allt of mikill og óhugsandi launamunur. Árið 1997 hafi hann lagt fram viðlíka drög þar sem kveðið var á um að launamunur yrði aldrei meira en tífaldur. Það þótti aftur allt of mikið og óhugsandi. Nú er hann allt að því fimmtíu og sjöfaldur. Friðbert segir að ef litið er á þetta í sögulegu samhengi þá var um aldamótin 1900 hópur manna sem átti Ísland og hafði það virkilega gott. Hann telur okkur vera að komast aftur þennan stað þar.
Fréttir Innlent Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira