Breikkun ekki á döfinni 24. febrúar 2005 00:01
Breikkun þjóðvegarins alla leið milli Reykjavíkur og Selfoss sem ýmsir telja jafn brýnt samgöngumál og frekari breikkun Reykjanesbrautar er ekki á dagskrá og ekki gert ráð fyrir frekari framkvæmdum á þessari leið næstu þrjú árin. Engu að síður hefur verið reiknað út að með sömu aukningu næstu ár og verið hefur munu vel yfir átta þúsund bílar fara þar um á degi hverjum árið 2008. Í kjölfar ákvörðunar Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra að ráðast í frekari tvöföldun Reykjanesbrautar eftir talsverðan þrýsting frá hagsmunaaðilum hefur talsverð vakning orðið hjá öðrum sveitarfélögum. Á Vesturlandi gerðust raddir háværari um að lækka ætti gjaldið gegnum Hvalfjarðargöngin og aðilum á Suðurlandi finnst brýnt orðið að breikka þjóðveg eitt milli Reykjavíkur og Selfoss alla leið og bæta götulýsingu í leiðinni. Hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga hefur verið ályktað um málið og það reifað við samgönguráðherra en undirtektir verið dræmar að sögn Þorvarðar Hjaltasonar framkvæmdastjóra. "Að okkar mati er tími til kominn að breikka veginn alla leið í þrjár akgreinar hið minnsta enda umferð aukist um veginn jafnt og þétt síðustu ár og útlit fyrir að umferðarþungi aukist frekar næstu ár. Þess utan er þörf á viðunandi veglýsingu og miðjuvegriði til að auka öryggi þeirra sem um veginn fara. Útreikningar okkar benda til að kostnaður vegna þessa yrði á bilinu 700 milljónum að einum milljarði króna en ávinningurinn mikill enda sýna rannsóknir að þriggja akreina vegur fækkar slysum um 30 prósent." Umferð um Suðurlandsveg hefur aukist umtalsvert hin síðari ár. Milli Hveragerðis og Selfoss fóru að jafnaði rúmlega sex þúsund bílar dag hvern á síðasta ári og tæplega sex þúsund fóru um Hellisheiðina en til samanburðar er umferðin um Reykjanesbrautina um átta þúsund bílar á dag.
Fréttir Innlent Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Sjá meira