Fjögur atkvæði réðu úrslitum 19. febrúar 2005 00:01
Ólafur Loftsson, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, var kosinn formaður Félags grunnskólakennara á aðalfundi félagsins sem haldinn var á föstudag og laugardag á Hótel Selfossi. Ólafur velti formanni félagsins til þriggja ára, Finnboga Sigurðssyni, úr stóli í kosningu á föstudaginn. Fjögur atkvæði skildu þá að, 46 á móti 42. Guðrún Guðmundsdóttir bauð sig einnig fram og hlaut fimmtán atkvæði. Finnbogi Sigurðsson, fráfarandi formaður, segir ekki ósennilegt að erfitt verkfall grunnskólakennara í vetur hafi átt sinn þátt í niðurstöðunni. "Í Félagi grunnskólakennara eru rúmlega fjögur þúsund félagsmenn. Það eru 104 fulltrúar á þessum aðalfundi sem vinna í umboði hinna sem heima sitja. Þetta er niðurstaðan og heitir lýðræði," segir Finnbogi. Aðspurður hvort flestir fulltrúanna séu ekki af höfuðborgarsvæðinu þar sem staða Ólafs hafi verið sterk segir Finnbogi: "Nei, ég vil nú ekki meina það, en höfuðborgarsvæðið ræður jú töluvert mörgum atkvæðum, töluvert mörgum." Ólafur segir erfitt kennaraverkfall ekki hafa haft áhrif á niðurstöðuna. Kosið hafi verið um ólíkar áherslur. Hann segir að efla þurfi innra starf félagsins. Auk þess þurfi að huga að drögum að kjarastefnu þess. "Kosningar eru kosningar og svona er vilji fundarins. Það er ekkert sem bendir til annars en að við förum sterk út af fundinum og komum til með að vinna sameiginlega að okkar stefnumálum," segir Ólafur. Aðalfundur grunnskólakennara er haldinn þriðja hvert ár í tengslum við þing Kennarasambandsins. Fundinn sitja stjórn, formenn svæðafélaga og einn fulltrúi kennara fyrir hverja fimmtíu félagsmenn. Finnbogi er með starfssamning hjá Kennarasambandi Íslands fram í ágúst. Hann er í leyfi frá kennslu í Fellaskóla í Breiðholti. Ólafur starfar sem kennari í Foldaskóla í Grafarvogi og á eftir að ganga frá málum þar áður en hann hefur störf hjá Kennarasambandinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Sjá meira