Haraldur hárfagri til Noregs 20. febrúar 2005 00:01
Haraldur hárfagri og Gyða kona hans eru í Garðabæ en fara fljótlega til Noregs í góðra vina hópi. Ný útflutningsgrein er að verða til. Það virðist vera fjölmennara inni í aðstöðu Sögusafnsins í Garðabæ en er í raun og veru því þar eru brúður eða gínur sem eru vægast sagt líflegar. Fyrir utan starfsmenn voru þarna Stórhaugsfurstinn svokallaði sem fannst heygður í Noregi, Haraldur hárfagri og Gyða kona hans. Þau eru að fara til Noregs, en nýtt safn sem á að opna þar í vor pantaði myndirnar. Ernst J. Backman, auglýsingateiknari og annar stofnenda Sögusafnsins, segir að þetta sé fyrsta stóra pöntunin sem leikmyndagerð Sögusafnsins fái og verið sé að gera sex gínur sem verði á safni við Aðalsnes í Noregi. En það eru ekki bara Norðmenn sem hafa áhuga á að fá gínur frá Sögusafninu heldur hafa fyrirspurnir komið víðar að. Ernst segir að átta manna sendinefnd frá Færeyjum hafi heimsótt hann um daginn og kynnt sér gínugerðina. Þá hafi Þjóðverjar einnig sýnt þessu áhuga þannig að áhuginn fari vaxandi. Ernst segir að þarna sé um að ræða fólk sem komið hafi á Sögusafnið og tekið ákvörðun eftir það. Þetta verkefni er styrkt af Nýsköpunarsjóði og er þróunarverkefni en svo virðist sem á laggirnar sé komin ný útflutningsgrein. Ernst segir að miðað við móttökurnar sem verkefnið hafi fengið eigi gínugerðin framtíð fyrir sér. Það megi segja að þetta sé vandað og flott, íslenskt handverk. Ernst segir aðferðina sem Sögusafnið notar frábrugðna þeim sem notuð er á hefðbundnum vaxmyndasöfnum. Þetta er tímafrekt enda tekur 3 til 4 vikur að setja bara hárið á gínurnar. Allar eru þær gerðar eftir fyrirmyndum og er auðvelt að ruglast á þeim og lifandi fólki. Ernst segir að honum bregði sjálfum reglulega þegar hann komi inn í hönnunarherbergið. Safnið þar sem myndin af Haraldi hárfagra, hinum gamla konungi Noregs, verður til sýnis opnar Haraldur núverandi Noregskonungur í maí.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Sjá meira