Bílbeltaundanþága barn síns tíma 20. febrúar 2005 00:01
Undanþága leigubílstjóra frá bílbeltaskyldu er barn síns tíma, segir talsmaður Umferðarstofu. Hjón, sem tóku leigubíl með níu ára syni sínum í gærkvöld, kröfðust þess að bílstjórinn setti á sig öryggisbelti enda fór bílstjórinn fram á það, eðlilega, að farþegar hans sætu spenntir. Bílstjórinn neitaði hins vegar og benti á að hann væri í lögum undanþeginn því að nota belti. Skúli Björnsson, sem tók þennan leigubíl í gærkvöld, er hissa á þessu gati í kerfinu og segir bílbeltanotkun ekki vera persónulegt mál bílstjóra leigubíla eða atvinnubíla heldur stórmál sem snerti öryggi farþega, ekki síst þegar hafður sé í huga áróðurinn um „fíla“ í bílunum. Ef bílstjórinn kastist til í bílnum við árekstur geti hann auðveldlega drepið farþegana með því að verða nokkur tonn að þyngd, eða eins og einn fíll. Sigurður Helgason hjá Umferðarstofu tekur undir gagnrýni Skúla Björnssonar á undanþágu atvinnubílstjóra frá bílbeltanotkun. Hann segir að mun meiri hætta sé á að menn lendi í hörðum árekstri heldur en að þeir verði fyrir líkamsáras, sem séu rökin fyrir undanþágu leigubílstjóra. Hann muni eftir einni helgi í haust þar sem sex árekstrar hafi orðið þar sem leigubílstjórar og leigubílar hafi komið við sögu og það segi sína sögu. Þörfin sé jafnmikil fyrir leigubílstjóra og aðra. Sigurður segir að við þetta bætist að flestir leigubílar séu tiltöluega nýir og í þeim séu öryggispúðar. Ef fólk vilji að þeir geri gagn verði það að vera með beltin spennt. Aðspurður hvort farþegar geti verið í hættu, þótt þeir séu í belti, ef leigubílstjórinn er ekki spenntur segir Sigurður það rétt, að sama skapi og ökumaður og farþegi í framsæti geti verið í hættu vegna lausra farþega í aftursæti, ekki síst ef öryggispúði sé fyrir hendi. Hann ráðleggi því leigubílstjórum eins og öllu skynsömu og góðu fólki að nota bílbelti. Hann telji reyndar að núorðið noti leigubílstjórar almennt bílbelti þrátt fyrir undanþáguna.
Fréttir Innlent Mest lesið Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Sjá meira