2500% munur á lyfjaverði 21. febrúar 2005 00:01
Lítið hefur áunnist á því ári sem liðið er frá því að Ríkisendurskoðun kallaði eftir úrbótum vegna mikils verðmunar á lyfjum hér á landi og í Danmörku. Dæmi eru um allt að 2500 prósenta mun á heildsöluverði lyfja milli landanna, þrátt fyrir að þau komi frá sama framleiðanda: Actavis. Úttekt Ríkisendurskoðunar á lyfjakostnaði hér á landi sem birt var á síðasta ári leiddi í ljós að árið 2003 greiddu Íslendingar að meðaltali 46 prósentum meira fyrir lyf en Danir og Norðmenn. Ríkisendurskoðun setti fram margvíslegar ábendingar um það hvernig stjórnvöld, lyfjafyrirtæki og læknar gætu dregið úr kostnaðinum. Ef bornar eru saman tölur úr lyfjaskrá Íslands við lyfjaskrá í Danmörku frá því í síðustu viku kemur gríðarlegur verðmunur í ljós. Heildsöluverð þrjátíu lyfja var kannað og í ljós kom að verðið var allt frá 9 prósentum hærra hér á landi upp í 2588 prósent. Heildsöluverð á 30 töflu pakkningu af íbúfeni, bólgueyðandi og verkjastillandi lyfi, er 345 krónur á Íslandi. Það er 199 prósentum hærra en í Danmörku. Dermatin-hársápa, sem notuð er við vægum sýkingum, kostar 1104 krónur í heildsölu á Íslandi, eða 322 prósentum meira en í Danmörku. Pakkning með 20 töflum af paxal, tauga- og geðlyfi, kostar 217 krónur á Íslandi, eða 506 prósentum meira. Pakki með 30 töflum af amlo, hjarta- og æðasjúkdómalyfi, kostar um 2100 krónur á Íslandi, eða 1096 prósentum meira en í Danmörku. Toppnum er svo náð þegar kannað er verð á hjarta- og æðasjúkdómalyfinu sivacor. Heildsöluverð á pakka með 28 töflum er 1474 krónur á Íslandi en 55 krónur í Danmörku. Það þýðir að greitt er um 2500 prósentum meira fyrir sama lyf frá sama framleiðanda hér á landi. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir þennan mikla mun óeðlilegan en að samkomulag sem gert var við lyfjaframleiðendur og heildsala hafi þó skilað árangri. Heildsölukostnaður hefði til dæmis lækkað um 763 milljónir króna á síðasta ári. Stefnan var þó sett á að kostnaðurinn yrði sambærilegur við það sem er annars staðar á Norðurlöndunum. Jón segir að þær skýringar sem hann hafi fengið séu munurinn á stærð markaðanna. Góður gangur er þó í viðræðum ráðuneytisins við lyfjaframleiðendur. Spurður hvort rétt sé að dýrara sé að koma verkjalyfi í verslanir hér en í Danmörku, þótt lyfið sé framleitt hér, segir hann svo vera. Forsvarsmenn Actavis sögðu í samtali við fréttastofuna í dag að danski markaðurinn væri ekki samanburðarhæfur vegna gríðarlegrar samkeppni. Það skýri að hluta til verðmuninn, auk stærðar danska markaðarins og smæðar þess íslenska.
Fréttir Innlent Mest lesið Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Erlent Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Innlent Voru komnir með sína eigin dyraverði þegar lögregluna bar að garði Innlent Skipagöngin samþykkt eftir pólitísk hrossakaup Fréttir Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Laus úr sjálfheldu eftir um fimm tíma strand Innlent Segir upptöku evrunnar geta leitt til aukins atvinnuleysis Innlent Tilkynnt um tónlistarhávaða um allan bæ Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Fleiri fréttir Segir upptöku evrunnar geta leitt til aukins atvinnuleysis Óskiljanlegt að ráðuneytið skoði bara stöðu námsgagna í stærðfræði Voru komnir með sína eigin dyraverði þegar lögregluna bar að garði Árekstur á Kársnesi Laus úr sjálfheldu eftir um fimm tíma strand Vill samfélagssáttmála vegna tómstundaiðkunar barna Hákarlaárás og fyrrverandi varaformaður Viðreisnar vonsvikinn Um 400 skjálftar hafa mælst í þéttri hrinu Sagnfræðirannsóknir, upptaka evru, menntakerfið og málefni barna Tilkynnt um tónlistarhávaða um allan bæ Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Sjá meira
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Erlent
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Erlent