Taka Aðalstræti 10 í sína vörslu 7. febrúar 2005 00:01
Reykjavíkurborg og Minjavernd hf. hafa gert með sér samning um að félagið taki húsið Aðalstræti 10 í vörslu til 35 ára. Markmið samningsins er að húsið verði endurbyggt á þann hátt sem því hæfir sem einu elsta húsi í Reykjavík. Þar með verður endurgerð húsa við Aðalstræti lokið. Í samningnum felst að Minjavernd tekur við húsinu í því ásigkomulagi sem það er í og endurbyggir það. Minjavernd verður eigandi að öllum endurbótum sem gerðar verða á húsinu til loka samningstíma. Að þeim tíma loknum hefur Reykjavíkurborg val um að framlengja samningstímann um 15 ár eða endurgreiða félaginu hluta kostnaðar við endurgerðina, alls 30 milljónir króna. Við endurgerðina verður fullt tillit tekið til þess að húsið er friðlýst samkvæmt 6. grein laga um húsafriðun. Gert er ráð fyrir að endurbótum verði lokið árið 2006. Samningurinn kveður jafnframt á um að Minjavernd verði heimilt að reisa byggingu aftan við húsið í samræmi við samþykkt deiliskipulag og tengja það því, kjósi félagið svo. Minjavernd verður eigandi þess húss. Húsið við Aðalstræti 10 er elsta húsið í Kvosinni og er eitt eftir af þeim húsum sem reist voru fyrir starfsemi Innréttinganna sem hófu starfsemi sína í Reykjavík 1752. Þær hafa verið kenndar við Skúla Magnússon landfógeta sem nefndur er faðir Reykjavíkur. Stofnun Innréttinganna var tilraun til að koma á fót iðnaði á Íslandi. Við þá götu sem seinna var nefnd Aðalstræti voru reist hús fyrir vefsmiðjur Innréttinganna og var það fyrsti vísir að þorpi í Reykjavík. Árið 1755 voru átta hús sem risin voru á vegum Innréttinganna virt en einnig kemur þar fram að gert hafi verið við gömlu bæjarhúsin í Reykjavík og virðast þau hafa verið nýtt á vegum verksmiðjanna. Húsið Aðalstræti 10 er þó talið byggt aðeins síðar, árið 1762, og hýsti í upphafi ullargeymslu og skrifstofu og íbúð bókhaldara Innréttinganna.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira