Hyggst færa heiminum frelsi 21. janúar 2005 00:01
Maðurinn, sem gárungar sögðu forseta fyrir slysni, verður forseti Bandaríkjanna í fjögur ár í viðbót og nú með miklum meirihluta atkvæða. George Bush ætlar að færa heimsbyggðinni frelsi og segir það tryggja öryggi Bandaríkjanna. Frelsi var lykilorðið í ræðu George Bush Bandaríkjaforseta í gær. Fimmtán sinnum minntist hann á frelsi og að vera frjáls, oftast í tengslum við að færa öðrum frelsi. Bush sagði að ef frelsi ætti að ríkja í Bandaríkjunum þyrfti að vera frelsi í öðrum löndum. Mesta vonin um frið í heiminum væri sú að friður ríkti sem víðast. Það kom einnig fram í máli Condoleezzu Rice, sem varð í vikunni utanríkisráðherra, að það væri efst á blaði nýrrar stjórnar að breiða út frelsi um heimsbyggðina þó að enginn viti nákvæmlega hvernig það á að gerast. Alþjóðasinnar, neokonservatívir repúbikanar og aðrir í stjórninni hafa nokkuð ólíkar skoðanir og áherslur þegar frelsið er annars vegar. Það er ekki alltaf auðvelt að vera forseti á öðru kjörtímabili því að sá tími sem forsetinn hefur til að fá stefnumál sín í gegn er ákaflega naumur. Þó að hann búi fjögur ár í Hvíta húsinu er aðeins um ár þangað til að þingmenn beina athygli sinni að þingkosningum. Í þeim kosningum gagnast velvild forsetans ekki lengur og því er þeim ekki endilega lengur í hag að vera honum hliðhollir. Auk þess eru tvö helstu stefnumál Bush á heimavelli dýr. Annars vegar vill hann umbætur á skattalögum og hins vegar bylta eftirlaunakerfinu. Hvort tveggja yrði dýrt fyrir ríkissjóð sem er nú þegar í skuld, ekki síst vegna kostnaðar við stríðið í Írak sem enginn í stjórn Bush vill spá fyrir um hvenær lýkur. Peggy Noonan, einn leiðarahöfunda Wall Street Journal, fannst ræða Bush vera í skýjunum, fjarri yfirborði jarðar en nærri guði. Hún hefur efasemdir um skynsemi þessa en telur þetta til marks um að Bush og samstarfsmenn hans séu í eins konar krossför, óraunhæfri herferð gegn harðstjórum og illvirkjum um allan heim.
Erlent Fréttir Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Sjá meira