Fleira ræður en aldur fanga 8. febrúar 2005 00:01
Það verður að horfa til fleiri þátta heldur en aldurs við vistun í fangelsi eða á deildum innan fangelsis," segir Erlendur S. Baldursson deildarstjóri Fangelsismálastofnunar um tillögur Ágústs Ólafs Ágústssonar alþingismanns um sérdeild fyrir unga fanga. Að sögn Erlends eru nú vistaðir 123 fangar í fangelsum landsins. Af þeim eru 27% eða samtals 33 fangar 24 ára og yngri. Tveir yngstu fangarnir eru fæddir árið 1985 og því 19 ára gamlir. Af þessum 33 föngum eru tveir erlendir karlar og þrjár konur. Sakaferillinn er allt frá umferðalagabrotum til grófra ofbeldisbrota. "Meirihlutinn hefur ekki afplánað áður, aðrir hafa margar afplánanir að baki," segir Erlendur. "Hluti fanganna hefur verið í mikilli vímuefnaneyslu frá unga aldri og á jafnvel margar meðferðir að baki. Aðrir eiga lítt eða ekki við slíkan vanda að stríða. Sumir koma frá góðum félagslegum aðstæðum og hverfa til þeirra aftur að lokinni afplánun, aðrir hafa brotið flestar brýr að baki sér. Sumir eiga auk þess við veruleg geðræn vandamál að stríða. Eins og sjá má á þessi stóri hópur yfirleitt lítið annað sameiginlegt en ungan aldur. Eldri föngum er einnig hægt að gera skil á sama hátt og þeim yngri. Aðstæður þeirra eru afar misjafnar með tilliti til ofangreindra þátta." Erlendur segir, að skilgreining þingmannsins um unga og óreynda fanga annars vegar og eldri og forherta fanga hins vegar sé einungis lítill hluti af þeirri heildarmynd sem fangelsisyfirvöld standi frammi fyrir. Af þeirri ástæðu geti verið heppilegt að vista ungan og óreyndan fanga með eldri og óreyndari fanga eða ungan og "erfiðan" fanga með eldri fanga sem á við fá vandamál að glíma. "Þá getur verið mjög óheppilegt að vista saman á einni fangelsisdeild marga unga menn sem hafa staðið saman í afbrotum um margra ára skeið. Oft getur verið heppilegra að aðskilja þá á deildum eða í fangelsum." Um það sem fram kemur hjá þingmanninum, að hlutfall þeirra sem "lenda í kasti við lögin" sé hærra hér á landi en annars staðar segir Erlendur að hið rétta sé að í tilvitnaðri rannsókn Helga Gunnlaugssonar segi skýrt að "niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að ítrekunartíðni þeirra sem ljúka fangavist á Íslandi sé mjög svipuð því sem tíðkast meðal annarra þjóða." Þá sé það athyglisverð staðreynd að fangafjöldi á Íslandi sé hlutfallslega 40-50% lægri en á hinum Norðurlöndunum.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira