Innlent

Stefnuleysi og doði ríkjandi

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson:  "Mér finnst hafa ríkt ákveðinn doði og enginn stór skref stigin nema á Austurlandi."
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson: "Mér finnst hafa ríkt ákveðinn doði og enginn stór skref stigin nema á Austurlandi."

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir vaxandi gjá milli sveitarfélaga sem hafi minnkandi tekjur og hinna sem njóti fólksfjölgunar og betri skilyrða í atvinnulífinu.

"Á suðvesturhorninu búa sveitarfélögin við skilyrði sem færir þeim auknar tekjur. Þegar komið er norður fyrir Snæfellsnes og austur á land eru sveitarfélög með allt að 4.000 íbúa í kröggum vegna minnkandi útsvarstekna." Vilhjálmur segir illmögulegt fyrir þessi sveitarfélög að draga úr kostnaði samfara tekjurýrnun og fólksfækkun. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur samið um 700 milljóna króna aukaframlag í jöfnunarsjóð sveitarfélaga næstu tvö árin til að mæta umræddum vanda.

"Mér finnst hafa ríkt ákveðinn doði og enginn stór skref stigin nema á Austurlandi," segir Vilhjálmur.

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir að landsbyggðin sé þolandi ástandsins í efnahagsmálum. "Menn eru alltaf að finna ný nöfn á aðgerðarleysið. Staðreyndin er sú að merkilega litlu fé er varið til byggðajöfnunaraðgerða þótt byggðaröskunin sé margfalt meiri en í nágrannalöndum." Steingrímur segir að flutningskostnaður sé sláandi dæmi um aðgerðarleysi stjórnvalda. "Áform stjórnvalda um jöfnun flutningskostnaðar hefur mallað nú í þrjú ár hjá stjórnvöldum og málið er afvelta ennþá. Ég veit um menn sem liggja yfir því hversu mikið kunni að sparast með því að staðsetja fyrirtæki í Hafnarfirði fremur en á Dalvík. Sæplast er gott dæmi um fyrirtæki sem ber mikinn flutningskostnað á aðföngum og afurðum," segir Steingrímur.

Einar Oddur Kristjánsson, Sjálfstæðisfokki, er varaformaður iðnaðarnefndar Alþingis, en hún fjallar um byggðamál. Hann tekur undir það að tekjum sveitarfélaganna sé misskipt. "Sjávarbyggðir standa veikar en oft áður. Það er rétt hjá formann Sambands íslenskra sveitarfélaga að hafa miklar áhyggjur. Framleiðslu- og samkeppnisiðnaður hefur ekki getað hækkað sín laun og það kemur niður á tekjum þessara sveitarfélaga. Þetta er svo aftur tengt vaxtahækkunum Seðlabankans. Það er sorglegt að á sama tíma og vandi steðjar að skuli Byggðastofnun vera jafn óvirk og hún er," segir Einar Oddur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×