Hart sótt að Arafat 18. júlí 2004 00:01
Staða Jasser Arafats, leiðtoga Palestínumanna, er erfiðari en hún hefur verið um margra ára skeið. Mikillar óánægju gætir með spillingu sem þykir hafa vaðið uppi innan heimastjórnarinnar auk þess sem hópar Palestínumanna keppast nú um að tryggja sér áhrif í aðdraganda þess að Ísraelar draga sig á brott frá Gazasvæðinu. Palestínskir vígamenn réðust á stjórnarbyggingu í Gaza í gær til að mótmæla skipan náfrænda Arafats í embætti yfirmanns öryggisstofnana. Þá hafa skipulagsbreytingar á öryggissveitum sem Arafat tilkynnti á laugardag. Þær eru sagðar engu breyta þar sem öryggissveitirnar heyri eftir sem áður undir Arafat og að ekkert sé gert til að draga úr spillingu. Mikil mótmælaalda reis um helgina. Í gær komu hundruð manna saman á götum Gazaborgar, margir vopnaðir, til að mótmæla skipun Moussa Arafat. Tugir grímuklæddra vígamanna gegnu um Nusseirat flóttamannabúðirnar og kölluðu "Nei við Moussa Arafat, já við umbótum". Fjölmenn mótmæli áttu sér einnig stað á laugardag. Mótmælin gegn Arafat og stjórn hans eru þau mestu um rúmlega eins árs skeið. Í fyrra urðu mótmæli gegn spillingu í heimastjórninni svo mikil að Arafat varð að lofa umbótum og skipa nýja ríkisstjórn undir stjórn forsætisráðherra. Sú staða var þá tekin upp í fyrsta sinn í palestínsku heimastjórninni. Fyrsti maðurinn til að gegna henni, Mahmoud Abbas, sat þó aðeins í fjóra mánuði áður en hann sagði af sér. Abbas, líkt og Ahmed Qureia, var ósáttur við að Arafat gæfi ekki nógu mikið eftir af völdum sínum. Qureia sagði af sér í fyrradag en Arafat neitar að taka afsagnarbeiðnina gilda. Heimastjórnin á að funda í dag og þar gæti framtíð Qureia ráðist. Gomma Ghali, yfirmaður strandgæslunnar, sem hefur verið tryggur stuðningsmaður Arafats, sagði af sér í gær í mótmælaskyni við skipun Moussa Arafats.
Erlent Fréttir Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira