Erlent

Tveir Danir létust í rútuslysi

Tveir létust og á sjötta tug eru slasaðir, þar af tíu alvarlega, eftir að tveggja hæða langferðabifreið ók fram af brú á hraðbraut við Köln í Þýskalandi í morgun. Rútan ók yfir vegrið á brúnni og rifnaði afturhluti hennar af og lenti á engi, 10 metrum neðan við brúna. Rútan var á leið frá Spáni til Danmerkur með 63 unga Dani sem voru á heimleið úr sumarfríi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×