Kosningar í Írak á næsta ári 19. september 2004 00:01
Kosningar verða haldnar í Írak í byrjun næsta árs sama hvað tautar og raular, segir Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks. Hann er því ósammála Colin Powell og Kofi Annan sem telja skálmöldina í landinu útiloka kosningar eins og stendur. Allawi fundaði í morgun með Tony Blair í Lundúnum, og ítrekaði eftir það að fyrstu lýðræðislegu kosningarnar í Írak yrðu haldnar í janúar á næsta ári. Hvergi yrði kvikað frá tímaáætlun þar að lútandi. Hann hvatti jafnframt Sameinuðu þjóðirnar til að gera sitt til að skipuleggja kosningarnar. Utanríkisráðherra Íraks gagnrýndi í morgun samtökin fyrir að gera lítið til að hjálpa. Hann sagði aðeins um þrjátíu alþjóðlega starfsmenn Sameinuðu þjóðanna í Bagdad, og að þetta dyggði ekki til. Kofi Annan sagði í vikunni að kosningar sem haldnar yrðu undir þeim kringumstæðum, sem ríkja í Írak, yrðu ekki trúverðugar og Colin Powell tók undir það, en setti þann fyrirvara að hann gerði fastlega ráð fyrir því, að ástandið hefði tekið miklum breytingum fyrir kosningarnar í janúar.
Erlent Fréttir Mest lesið Skotmennirnir feðgar Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Innlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Innlent Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð Innlent Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Innlent Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Innlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Fleiri fréttir Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Sjá meira