Venjulegt fólk fer í Smáralindina 23. júlí 2004 00:01 "
Rónarnir eru á Ingólfstorgi en venjulegt fólk fer í Smáralindina," segir leikritahöfundurinn Jón Atli Jónasson en Reykvíska listaleikhúsið frumsýnir verk hans, Krádplíser, í kvöld. Verkið er úttekt á verslunarmiðstöðvarkúltúr landsmanna og upphaflega átti að sýna Krádplíser í verslunarmiðstöð. "Í Bretlandi kallast þetta "site specific" leikhús og til dæmis sá ég þar sýningu sem nefnist Hospital og fjallaði um það hvernig börn upplifa spítalavist. Til að sjá verkið mættu áhorfendur á spítala og þar hafði einni deildinni verið breytt í leikhús." Krádplíser Jóns Atla þróaðist þegar Smáralindin opnaði á sínum tíma. "Hugmyndin var að sýna verkið þar að nóttu til en því hefði fylgt aðeins of mikið vesen auk þess sem Smáralindin er með sitt eigið leikhús," segir Jón Atli og því er Krádplíser sýnt í 400 fermetra hráu rými í Tónlistarþróunarmiðstöðinni á Hólmaslóð 2. Þegar áhorfendur mæta á svæðið fara þeir í ferðalag með leikhópnum. "Þetta gerist rétt fyrir opnun á nýrri verslunarmiðstöð og eins og Íslendingum er von og vísa er allt á síðustu stundu. Við fylgjumst með því hvernig persónunum tekst að fóta sig á þessu nýja landsvæði og áhorfendur gegna þar ákveðnu hlutverki. Í verslunarmiðstöðvunum eru til staðar ótal óskráðar samskiptareglur, til dæmis má ekki vera með videoupptökuvél í Kringlunni án þess að allt fari úr skorðum. En verslunarmiðstöðvarnar eru líka svolítið eins og hver og einn vill að þær séu, þar fær fólk það sem það vill og ég vona að Krádplíser verði líka þannig." Uppselt er á frumsýninguna í kvöld en Krádplíser verður næst sýnt 27. og 28 júlí klukkan 18.00. Miðapantanir eru á netfanginu tvkart@hotmail.com.
Menning Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Fleiri fréttir Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Sjá meira