Erlent

Þroskaheftur eftir þrjá áratugi

Tæpum þremur áratugum eftir að Walter Bell var fyrst lokaður inni á dauðadeild í fangelsi í Texas hefur hann verið úrskurðaður þroskaheftur. Þar með aukast líkur á því að hann verði ekki tekinn af lífi. Hinn fimmtugi Walter Bell er sá maður sem hefur dvalið lengst á dauðadeild í Texas, alls 29 ár eða rúma hálfa ævina. Þangað var hann sendur eftir að hann var fundinn sekur um að myrða tvær manneskjur. Síðan þá hafa verjendur hans barist fyrir því að dauðadómur yfir honum verði mildaður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×