Erlent

Hryðjuverkabæklingur í Bretlandi

Upplýsingabæklingur um hvernig bregðast skuli við, verði hryðjuverkaárás gerð á Bretlandi, verður sendur inn á hvert heimili þar í landi á næstunni. Bæklingurinn inniheldur upplýsingar um fyrstu hjálp og í honum má finna leiðbeiningar um undirbúning, svo sem að gott sé að birgja sig upp af dósamat. Samhliða bæklingnum verða auglýsingar birtar í sjónvarpi og útvarpi. David Blunkett, innanríkisráðherra Bretlands, segir herferðinni ætlað að upplýsa fólk en ekki hræða það. Hann segir upplýsingarnar ekki bara eiga við um hryðjuverkaárásir heldur einnig eldsvoða og flóð svo dæmi séu tekin. Engum blandast þó hugur um að bresk yfirvöld telja hryðjuverkaárás yfirvofandi og opinberlega hefur verið greint frá því að fleiri en einni slíkri hafi verið afstýrt. Sky-sjónvarpsstöðin gerði viðhorfskönnun til þessara leiðbeininga í morgun og sögðust sextíu prósent þátttakenda ætla að fara að leiðbeiningunum en fjörutíu prósent sögðust ekki ætla að gera það.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×