Lífstíðardómur Mijailovic ógiltur 8. júlí 2004 00:01
Áfrýjunardómstóll í Svíþjóð ógilti í dag lífstíðardóm yfir Mijailo Mijailovic, morðingja Önnu Lindh utanríkisráðherra Svíþjóðar, og dæmdi hann þess í stað til vistunar á réttargeðdeild. Mögulegt er að niðurstöðunni verði áfrýjað til hæstaréttar Svíþjóðar. Í niðurstöðum áfrýjunardómstólsins segir að þar sem Mijailovic hafi verið illa haldinn af geðveilu þegar hann myrti Lindh í september á síðasta ári eigi hann mun frekar heima á geðsjúkrahúsi en í fangelsi. Niðurstöður fyrri geðrannsókna á honum, sem framkvæmdar voru skömmu eftir morðið á Lindh, höfðu ekki leitt í ljós geðveilu og því var hann þá dæmdur í lífstíðarfangelsi. Nýlegri rannsóknir benda hins vegar til að Mijailovic þjáist af alvarlegum persónuleikaröskunum og tók áfrýjunardómstóllinn mið af því. Í dómnum frá því í morgun segir að það sé samdóma álit geðlækna að Mijailovic sé alvarlega skaddaður einstaklingur með miklar geðtruflanir sem þurfi á sjúkrahúsvist að halda. Hann skuli því fluttur á réttargeðdeildina í Huddinge þar sem ákvörðun verði tekin um hvaða meðferðarstofnun skuli hýsa hann. Þrátt fyrir fyrrgreinda niðurstöðu áfrýjunardómstólsins var beiðni verjenda Mijailovic, um að breyta dómnum yfir honum úr morði í manndráp af gáleysi, hafnað þar sem sýnt þótti að fyrirætlan hans hafi klárlega verið sú að myrða Lindh. Niðurstaðan þykir samt sem áður mikill sigur fyrir verjandann sem fór fram á ítarlegri geðrannsóknir á skjólstæðingi sínum eftir að hann var fundinn sakhæfur. Líklegt verður að teljast að niðurstöðunum frá því í morgun verði áfrýjað til hæstaréttar Svíþjóðar.
Erlent Fréttir Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira