Borgarastyrjöld vofir yfir 28. nóvember 2004 00:01
Borgarastyrjöld er yfirvofandi í Úkraínu eftir að héraðsstjórnir í austurhluta landsins hótuðu að skilja sig frá vesturhlutanum og krefjast sjálfsstjórnar, vegna deilunnar um forsetakosningarnar. Stjórnmálakreppan í Úkraínu stigmagnast og halda tugþúsundir áfram að mótmæla úrslitum forsetakosninganna, sjöunda daginn í röð. Mótmælendur hafa hindrað aðgang að stjórnarbyggingum í Kænugarði og lýst yfir stuðningi við Júsjenkó, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, sem segir að Janúkóvits, forsætisráðherra, hafi verið tryggður sigur í kosningunum með svindli. Hæstiréttur Úkraínu tekur á morgun fyrir kæru Júsjenkós, um meint kosningasvik, en fátt bendir til þess að lausn sé í sjónmáli. Kútsma, fráfarandi forseti, fundaði með öryggisráði landsins vegna ólgunnar. Hann sagði að yfirvöld ættu að gera allt til þess að reyna að koma í veg fyrir að hættuástand skapaðist. Mikilvægast af öllu væri að viðræður um lausn hæfust strax. Janúkóvits, forsætisráðherra, nýtur mikils stuðnings í austurhluta landsins, en Júsjenkó í vesturhlutanum, sem þykir hallur undir vesturveldin. Héraðsstjórnir í austurhlutanum hafa hótað að skilja sig frá vesturhlutanum og krefjast sjálfsstjórnar, verði úrslit forsetakosninganna ekki staðfest. Kvasníevskí, forseti Póllands, sem er í Kænugarði, til að reyna að miðla málum, varar við sundrungu landsins og Evrópusambandið telur best að forsetakosningarnar verði endurteknar sem fyrst. Þær hugmyndir hafa vakið mikla reiði meðal stuðningsmanna forsætisráðherrans.
Erlent Fréttir Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira