Reksturinn verði tryggður áfram 27. nóvember 2004 00:01
Stjórn Íslandsdeildar Amnesty International skorar á Alþingi að tryggja áfram rekstur Mannréttindaskrifstofu Íslands. Skrifstofan fær engin bein framlög frá ríkinu á næsta ári, en getur sótt fé í sjóð ætluðum til mannréttindamála. Formaður Mannréttindaskrifstofu telur vegið að mannréttindastarfi í landinu með því að tryggja Mannréttindaskrifstofu Íslands ekki bein fjárframlög frá ríkinu. Íslandsdeild Amnesty International hefur fjallað um málið og skorar á stjórnvöld að endurskoða ákvörðun sína. Bent er á að með stofnun mannréttindaskrifstofunnar árið 1994 hafi verið lagður grunnur að mikilvægum vettvangi til þess að samhæfa mannréttindastörf hér á landi og hún hafi margsannað gildi sitt. Í áskorun Íslandsdeildar Amnesty segir að Sameinuðu þjóðirnar hafi hvatt aðildarríki til að tryggja að í hverju landi starfi mannréttindaskrifstofur og í skýrslu Íslands til eftirlitsnefndar stofnunarinnar, um samning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, hafi þess sérstaklega verið getið að stjórnvöld hér á landi styddu starfsemi slíkrar skrifstofu, sem eins framlags ríkisins til þess að efla mannréttindi á Íslandi. Íslandsdeild Amnesty International telur að tillögur fjárlaganefndar Alþingis, sem nú liggi fyrir, feli í sér þá hættu að fjármunir til mannréttindamála almennt, nýtist illa, og dreifist á marga aðila og einstaklinga. Fjármagninu sé hins vegar best varið með því að tryggja traustan rekstur oh þannig sjálfstæði Mannréttindaskrifstofu Íslands.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Fleiri fréttir Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Sjá meira