Denise í Playboy og Charlie sáttur 30. júní 2004 00:01
Hin stórglæsilega móðir Denise Richards undirbýr sig nú fyrir að fækka fötum fyrir Playboy, einungis þremur mánuðum eftir að hún eignaðist sitt fyrsta barn. Og það sem meira er, eiginmaðurinn Charlie Sheen er hæstánægður með þetta allt saman. "Denise er í skýjunum yfir því að Playboy skuli hafa viljað fá hana til að sitja fyrir svo skömmu eftir fæðinguna," sagði vinur hennar við fjölmiðla. "Henni finnst sér mikill heiður sýndur. Denise segir líka að Charlie sé ekkert afbrýðissamur út af þessu. Í raun sé hann mjög stoltur af henni og ánægður með að hún vilji sýna öðrum karlmönnum fallegan líkama sinn." Denise er þó sögð hafa áhyggjur af því að ná af sér aukakílóunum í tæka tíð fyrir myndatökuna. Stefnt er að því að myndirnar af henni birtist í desemberhefti Playboy og þær þurfa að vera tilbúnar mörgum mánuðum fyrr. "Þessa dagana er hún í aðhaldi í mataræðinu og æfir eins og skepna svo hún líti sem best út fyrir framan myndavélina," sagði vinur hennar ennfremur. "Hún er með einkaþjálfara og fylgir ströngu mataræði. Hún er nú þegar komin í toppform. En það er ekki nógu gott fyrir Denise. Hún vill vera algerlega fullkomin þegar hún sýnir öllum heiminum líkamann á sér." Denise er 33 ára gömul og eignaðist fyrsta barn sitt með eiginmanninum, leikaranum Charlie Sheen, 9. mars síðastliðinn. Þau eignuðust dóttur sem skírð var Sam. "Það hafði alltaf verið draumur Denise að verða móðir. Hún ætlar til dæmis ekki að sýna allt á myndunum í Playboy af virðingu við dóttur sína og önnur börn sem hún kann að eignast. Denise segist fá að ráða því hvaða myndir af henni birtast í blaðinu af því hún vill að þetta verði fullkomið. Nú er hinn stóri draumurinn hennar að rætast. Hana hefur nefnilega alltaf líka dreymt um að birtast á síðum Playboy."
Menning Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Fleiri fréttir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Sjá meira