Edwards ber Kerry lofi 29. júlí 2004 00:01
John Kerry tekur í dag formlega við útnefningu sem forsetaframbjóðandi demókrata á flokksþingi þeirra í Boston. Ræðan sem hann heldur í kvöld er líklega sú mikilvægasta á ferli hans. Það var mikil stemmning þegar að John Edwards steig í pontu á þinginu. Troðið var í öll sæti og ljóst að viðbrögðin yrðu sterk, hvað sem Edwards myndi segja. Ræða hans var fremur fyrirsjáanleg og efnisrýr, tönglast var á þeim lykilatriðum sem þeir Kerry og Edwards vilja byggja á, það er að Kerry sé stríðshetja sem verður sterkur leiðtogi og allir eigi að geta upplifað ameríska drauminn, komist þeir til valda. Ákveðinn og sterkur, eru lykilorðin sem notuð eru um Kerry og sýn þeirra Edwards á að vera jákvæð og bartsýn, þvert á það sem Edwards sagði vera þreytta, gamla og hatursfulla og neikvæða stefnu fortíðar. Þó að viðbrögðin hafi verið góð í höllinni kveikti Edwards ekki í mannfjöldanum og skilaboðin voru heldur loðin og draumórakennd. Á fundi í gær með helstu ráðgjöfum Kerrys í utanríkismálum sem haldinn var með nokkrum blaðamönnum og erlendum leiðtogum var sýnin ögn skýrari en þó ekki mikið. Lögð var gríðarmikil áhersla á að Kerry myndi bæta samskipti við bandamenn leita samvinnu og annarra lausna áður en til stríðsreksturs kæmi. Áhugavert var að ráðgjafarnir sögðu mikilvægt að draga úr áhrifum olíuríkja sem þeir sögðu hafa of mikil áhrif á sjálfstæði utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Í kvöld er svo komið að sjálfum Kerry að halda ræðu. Heimildarmenn innan raða ráðgjafa hans segja ekki að vænta stórtíðinda í kvöld í ávarpi hans en þess er þó beðið með eftirvæntingu hvort hann verður fullur af eldmóði eða jafn dauflegur og hann hefur verið hingað til.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira