100 þúsund hafa látist í Súdan 18. desember 2004 00:01
Hátt í tvær milljónir Súdana eru í flóttamannabúðum í Darfurhéraði í vestur Súdan. Um eitthundrað þúsund manns hafa látið lífið í átökum uppreisnarmanna og stjórnarliða. Hjálpar- og mannúðarstofnanir óttast að sú tala kunni að margfaldast á næstu mánuðum. Jóhann Hlíðar Harðarson, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar, er í Darfurhéraði. Á næstu dögum verður skrifað undir friðarsamkomulag á milli Norður- og Suður-Súdans sem bindur enda á tuttugu ára borgarastyrjöld sem hefur kostað tvær milljónir mannslífa. Á sama tíma blossa upp harðvítug átök í Darfurhéraði á milli uppreisnarmanna og stjórnarhersins. Þessi átök, sem í stuttu máli snúast um völd og efnisleg gæði, hafa á síðustu mánuðum leitt til þess að hátt í tvær milljónir manna hafa mátt flýja heimili sín. Hersveitir sem eru á mála hjá ríkisstjórninni hafa brennt og eyðilagt yfir 400 þorp í héraðinu og það er talið að um eitthundrað þúsund manns hafi þegar látið lífið í átökunum. Í helstu borgum héraðanna ríkir friður en utan þeirra eru skærur og átök. Þegar ég var á einu sjúkrahúsa Rauða krossins í Savingi í Vestur-Súdan í fyrradag voru nýkomnir inn fimmtán súdanskir karlmenn með skotsár, sumir afar illa haldnir. Vegurinn á milli Savingi og Myala í Suður-Darfur hefur verið lokaður þar sem hætta er á fyrirsát og gildir þá einu hvort menn eru á bílum merktum þeim fjölmörgu hjálparsamtökum sem hér leggja hönd á plóginn. Um 130 flóttamannabúðir eru í Darfur. Rauði krossinn heldur uppi umfangsmiklu hjálparstarfi á svæðinu og er þetta umfangsmesta aðgerð samtakanna í heiminum í dag. Alls eru 200 erlendir sendifulltrúar í landinu, auk 2000 Súdana, sem sinna hjálparstarfi á vegum Alþjóða Rauða krossins. Aðstoðin er margvísleg: í formi matargjafa; fatnaði, ábreiðum og eldhúsáhöldum er dreift til fólks, sjúkrahús eru starfrækt á vegum Rauða krossins og vatns- og hreinlætisaðstöðu hefur verið komið upp víða. Ástandið í Darfur viku fyrir jól er brothætt. Tveir breskir starfsmenn hjálparsamtaka voru myrtir fyrir nokkrum dögum og dæmi eru um að fólk í hjálparstarfi hafi verið stöðvað og því misþyrmt. Ljóst er að verði hjálparstarfinu ógnað og óöldin magnast þá blasið algjör neyð við hundruðum þúsunda, ef ekki milljónum, manna hér í Darfur á næstu vikum og mánuðum.
Erlent Fréttir Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Sjá meira