Sport

Viggó valdi Bergsvein

Fyrrum landsliðsmarkvörður Íslands, Bergsveinn Bergsveinsson, verður aðstoðarþjálfari Viggós Sigurðssonar með handboltalandsliðinu. Ráðning Bergsveins kemur talsvert á óvart enda hefur Bergsveinn verið lítt áberandi í handboltalífinu síðustu ár. Viggó og Bergsveinn hafa þekkst lengi enda var Viggó fyrsti þjálfari Bergsveins í meistaraflokki en hann þjálfaði hann einnig í 2. flokki og í unglingalandsliðinu. Áður hafði Geir Sveinsson hafnað boði um að gerast aðstoðarmaður Viggós sem valinn var fram yfir Geir við ráðningu landsliðsþjálfara á dögunum en valið stóð á milli þeirra tveggja. Frá þessu verður nánar greint í Fréttablaðinu á morgun þar sem meðal annars er rætt við Viggó um valið á aðstoðarmanni sínum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×