Gjaldið lækki um 20-30 krónur 25. nóvember 2004 00:01
Endurfjármögnun lána vegna Hvalfjarðarganga skapar einungis svigrúm til að lækka gangagjaldið um 20-30 krónur, segir formaður Spalar. Hann bendir samgönguráðherra á að hægt væri að lækka gjaldið mun meira með því að fella niður virðisaukaskatt. Samgönguráðherra lýsti þeirri skoðun sinni á Alþingi í gær að Spölur ætti að geta lækkað veggjaldið um Hvalfjarðargöngin verulega með því að endurfjármagna lán sem tekin voru til að gera göngin, jafnt innlend lán sem erlend. Hann vísaði í máli sínu til nýrrar úttektar Ríkisendurskoðunar á bókhaldi fyrirtæksins. Gísli Gíslason, formaður Spalar, segir málið vera margslungið en að vinna við endurfjármögnun lána hafi hafist þegar í sumar. Hann segir að takmarkaður ávinningur sé af endurfjármögnun erlendra lána þar sem uppgreiðslukostnaður sé í kringum hálfur milljarður króna en Spölur skuldar 2,8 milljarða í erlendum lánum á 7-8 prósenta vöxtum. Þá kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar að Spölur gæti sparað um 50 milljónir á ári með því að skuldbreyta innlendum lánum. Lungi þeirra, eða um 2 milljarðar króna, eru lán frá ríkissjóði á 6% vöxtum auk verðtryggingar, sem þýðir um 9% vexti. Gísli segir það góðar fréttir að samgönguráðherra sé tilbúinn að lækka vexti af lánum Spalar. Hann telur að þarna sé þó aðeins hægt að spara um 30 milljónir, en að þetta eitt og sér leyfi ekki nema 20-30 króna lækkun veggjalds. Gísli segir að besta leiðin til að lækka veggjaldið verulega sé að fella niður virðisaukaskatt af veggjaldinu. Hann segir að vaskurinn hafi verið felldur niður af framkvæmdum við gerð ganganna en að ríkið sé nú búið að fá þann skatt til baka þannig að nú sé rétti tíminn til að fella niður virðisaukaskattinn, ef ríkinu er í raun og veru umhugað um að lækka veggjaldið.
Fréttir Innlent Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Máttu tæma lónið Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Fleiri fréttir Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Sjá meira