Rotturnar fúlsa við honum 24. nóvember 2004 00:01
Óttast er að skaðvaldur af sniglastofni sé að nema hér land, en hann hefur farið mikinn í Evrópu. "Hann heitir Spánarsnigill og er ættaður frá Íberíuskaga. Síðustu áratugi hefur hann verið að dreifast norðvestur á bóginn í Evrópu," segir Erling Ólafsson, skordýrafræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands. Hann segir vitað til þess að snigillinn hafi numið land í Svíþjóð, Danmörku, Noregi og Færeyjum. "Það er algjör sprenging í fjölgun hans," segir Erling og bætir við að snigillinn sé enginn aufúsugestur. "Þetta er mikil skepna og stór. Flestir þekkja svartsnigilinn okkar. Þessi er svona helmingi stærri, rauður á lit og mikið átvagl því hann étur allt sem fyrir verður. Hann fer í blómabeðin og étur þau. Svo fer hann í matjurtagarðinn, en er þó ekki mjög hrifinn af kryddjurtum og lyktarsterkum plöntum." Á ensku er snigillinn kallaður Killer slug, enda lætur hann ekki nægja að leggjast á gróður heldur drepur hann líka smærri snigla og skordýr og étur. Þá segir Erling ekkert gagn hafandi af sniglinum því hann sé með öllu óætur. "Rotturnar vilja hann ekki einu sinni, hann er svo slímugur," segir hann, en snigillinn ver sig með mikilli slímframleiðslu. Hingað til segir Erling snigilinn bara hafa fundist tvisvar, í sumar og í fyrrasumar, bæði skiptin í Reykjavík. Einnig hafa þó borist óstaðfestar fregnir af því að snigillinn hafi fundist í Hveragerði. "Ég hef ekki heyrt af því, en það er ekki ólíklegt því þar myndi hann lifa góðu lífi á háhitasvæðunum." Erling segir snigilinn þola illa mjög mikil frost, en þó ætti hann að lifa af veturinn hér, að minnsta kosti á höfuðborgarsvæðinu og víða á Suðurlandi. "Snigillinn er mjög illa þokkaður hér í nágrannalöndunum og menn hafa engin ráð með að losna við hann því hann fjölgar sér alveg hreint eins og kanína," segir Erling og bætir við að hann hafi ekki trú á að það náist að hemja vöxt snigilsins hér, nái hann sér á annað borð á strik. "Það er kannski fullmikið sagt að hann hafi numið hér land, en fyrst búið er að finna hann tvisvar er að minnsta kosti hægt að tala um að hann banki á dyrnar."
Fréttir Innlent Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Fleiri fréttir „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Sjá meira