Tilbúnar tölur frá ráðherra 13. október 2005 15:02
Forsendur sem lagðar eru til grundvallar hækkunar innritunargjalds í Háskóla Íslands standast ekki að mati Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Það telur hækkun gjaldsins úr 32.500 í 45 þúsund krónur, nái frumvarp menntamálaraðherra fram að ganga, hafi verið fyrirfram ákveðna og forsendur fundar til að réttlæta hana. Tæp 38,5 prósenta hækkun fylgi ekki verðlagi. Þórður Kristinsson, framkvæmdastjóri akademískrar stjórnsýslu Háskóla Íslands, segir að verið sé að leiðrétta innritunargjöldin sem hafi ekki fengist breytt fyrr: "Ekki er verið að búa til tölur heldur er farið eftir staðreyndum um kostnaðarliði sem teknar eru úr bókhaldinu." Forsvarsmenn Stúdentaráðs, Jarþrúður Ásmundsdóttir formaður og Erla Ósk Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri, segja að liðum í kostnaðaráætluninni sem Háskólinn sendi menntamálaráðuneytinu hafi verið breytt eftir gagnrýni Stúdentaráðs. Í fyrri áætlun hafi til dæmis verið gert ráð fyrir að tuttugu prósent af kostnaði deildarskrifstofa eigi heima í innritunargjöldunum. Upphæðin sé sögð 36 milljónir. Í frumvarpinu sem lagt var fyrir Alþingi sé sama hlutfall talið nema 61 milljón króna. Erla Ósk segir það tilfinningu Stúdentaráða Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri og Kennaraháskólans að krafan um 45 þúsund króna innritunargjöld hafi komið frá menntamálaráðuneytinu að frumkvæði Háskóla Íslands sem þurfi aukið fé. Allir skólarnir hafi áætlað að nær sama gjald þurfi til að standa undir kostnaði við innritanir. Reiknaður sé aukakostnaður á liðina í frumvarpinu upp á tólf prósent til að ná tilætlaðri tölu. Þórður segir alvarlegt að Stúdentaráð setji fram efasemdir um útreikninga Háskólans: "Sjónarmiðin geta verið ólík en það er mat Háskólans að þetta sé upphæðin sem innritunargjaldið þarf að standa undir. Eins og það er í dag er gjaldið of lágt. Rök hafa verið færð fyrir því og farið yfir þau með menntamálaráðuneytinu." Gjald Háskólans sé hans útreikningur. Hann geti ekki svarað fyrir útreikninga annarra ríkisrekinna Háskóla.
Fréttir Innlent Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira