Tvö mannskæð slys í Kína 21. nóvember 2004 00:01
Fimmtíu og þrír létust þegar flugvél endastakkst ofan í ísi lagt stöðuvatn aðeins nokkrum sekúndum eftir flugtak í norðurhluta Kína í morgun. Níu námumenn létu jafnframt lífið í eldsvoða í sama landshluta í morgun. Slysið varð í héraðinu Innri Mongólíu og var vélin á leið frá Baotou til Shanghæ með fimmtíu og einn innanborðs. Ekki er vitað hvað kom upp á, veður var gott og því talið ljóst að einhvers konar vélarbilun hafi orðið. Sjónarvottar segja að vélin hafi gefið frá sér svartan reyk, svo hafi heyrst mikil sprenging og vélin endastakkst í gegnum skemmtigarð og út á ísi lagt stöðuvatn. Þar stóð hún í björtu báli áður en hún stakkst ofan í vatnið. Allir um borð létust auk tveggja manna á jörðu niðri. En þetta var ekki eina slysið í norðurhluta Kína í morgun því níu námumenn létu lífið og 57 er saknað eftir mikinn eldsvoða í járnnámum í Hebei héraði. Námuslys eru afar tíð í Kína og að jafnaði verður að minnsta kosti eitt kolanámuslys í hverri einustu viku. Kína er orðið sjöunda stærsta hagkerfi heimsins og eftirspurn eftir eldsneyti hefur aukist gríðarlega. Til að anna þessu hefur orðið mikil aukning í námugreftri en eftirlitið er hins vegar afar takmarkað.
Erlent Fréttir Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira