Fortíð CIA-stjóra á huldu 11. ágúst 2004 00:01
Porter J. Goss, sem tilnefndur var í gær sem næsti forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar CIA, var leyniþjónustumaður í Mið-Ameríku á miklum umbrotatímum í bandarískum öryggismálum á 7. áratugnum. Margt er á huldu um fortíð Goss sem verið hefur formaður leyniþjónustunefndar bandaríska þingsins. Goss gekk til liðs við CIA árið 1960 eftir að hafa lokið háskólagráðu í grísku frá Yale-háskólanum. Hann vann að leynilegum verkefnum í Mexíkó, í Dóminíkanska lýðveldinu og á Haítí en ekki liggur ljóst fyrir hversu langi hann dvaldi á hverjum stað. Á þessum tíma var Kúba í brennidepli bandarískrar utanríkisstefnu og Kalda stríðið stóð sem hæst. Kastró hafði nýlega náð völdum og skyndilega höfðu Sovétríkin eignast samherja aðeins 145 kílómetra frá ströndum Bandaríkjanna. Goss starfaði meðal annars í Miami þar sem kúbverskir andspyrnumenn hópuðust saman. CIA sá um að skipuleggja starf þeirra og þjálfa þá til hernaðaraðgerða gegn Kastró. Sú vinna skilaði ekki tilætluðum árangri og hin misheppnaða Svínaflóainnrás árið 1961 var leyniþjónustunni mikið áfall. Í viðtali árið 2002 greindi Goss frá því að hann hefði tekið þátt í því að fá landflótta Kúbverja til liðs við CIA. Árið 1965 réðust bandarískar hersveitir inn í Dóminíkanska lyðveldið af ótta við að sagan frá Kúbu endurtæki sig, en Dóminíkanska lýðveldið var eitt þeirra landa þar sem Goss vann að leynilegum verkefnum. Goss fór frá Mið-Ameríku til Lundúna undir lok 7. áratugarins en í heimsókn til Bandaríkjanna árið 1970 var hann hætt kominn vegna blóðeitrunar og hætti störfum hjá CIA ári seinna. George W. Bush lét svo ummælt þegar hann tilnefndi Goss í stöðu forstjóra CIA að þar væri kominn maður sem þekkti starfsemi leyniþjónustunnar inn og út. Tilnefningin á eftir að hljóta staðfestingu bandaríska þingsins og búist er við því að þingið muni þjarma að Goss að gefa nánari upplýsingar um fortíð sína á 7. áratugnum.
Erlent Fréttir Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Fleiri fréttir Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Sjá meira