Erlent

Mótmæli við argentíska þingið

Mikill viðbúnaður var í höfuðborg Argentínu, Búenos Aíres, þegar fimm þúsund atvinnulausir Argentínumenn söfnuðust saman fyrir utan þing landsins í morgun og kröfðust umbóta á velferðakerfinu. Hópurinn mótmælti einnig nýjum öryggisreglum sem forseti landsins, Nestor Kirchner, reynir nú að koma í gegnum þingið. Fyrir einungis tveimur vikum brutust út hörð átök þegar mótmælendum lenti saman við lögreglu í borginni en þá voru fimmtán handteknir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×