Erlent

Sækir um skilnað við föður sinn

14 ára drengur í Bandaríkjunum hefur sótt um skilnað við föður sinn en hann drap móður drengsins fyrir sex árum. Patrick Holland vill slíta öll tengsl við föður sinn. Faðir hans, Daniel Holland, drap móður Patricks með hrottalegum hætti þegar hann braust inn á heimili hennar í Massachusetts árið 1998. Holland skaut konuna sex sinnum og barði hana með byssuskeftinu. Það var sonurinn Patrick sem kom svo að móður sinni morguninn eftir en þá var hann einungis 10 ára gamall. Faðir hans hlaut lífstíðardóm fyrir en þangað til Patrick verður 18 ára hefur Daniel Holland aðgang að öllum upplýsingum um son sinn, t.d. skóla- og sjúkraskrám. Vinafólk móður Patricks hefur forræði yfir drengnum en faðir hans segist vilja fylgjast með syni sínum og frammistöðu hans í skólanum. Málið er fyrsta sinnar tegundar og þó að stjórnvöld taki oft foreldraréttinn af fólki þá er þetta í fyrsta sinn sem barn fer fram á að slíta öll tengsl við foreldri sitt. Gert er ráð fyrir að Patrick fari í vitnastól og skýri frá tilfinningum sínum til föður síns. Daniel Holland fær að vera viðstaddur réttarhöldin. Myndin er af hinum 14 ára Patrick Holland.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×