Erlent

77 ára kona kveikir í syni sínum

77 ára gömul norsk kona frá bænum Refsnesi var úrskurðuð í gæsluvarðhald í gær, grunuð um að hafa kveikt í í fimmtugum syni sínum. Mæðginin höfðu setið að sumbli á heimili þeirra þegar eitthvað slettist upp á vinskapinn. Lögreglan telur að þegar þar var komið sögu hafi konan skvett rótsterkum spíra á drenginn sinn og kveikt svo í. Það vill sú gamla ekki viðurkenna og segir að þetta hafi verið óhapp en því trúir lögreglan ekki nema rétt mátulega. Dagsavisen, sem segir frá þessum atburði, greinir ekki frá frekari afdrifum sonarins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×