Erlent

Fjórtán manns látast í lestarslysi

Fimmtán manns, þar af fimm börn, létust þegar lítil rúta og lest skullu saman á lestarteinum í vesturhluta Tyrklands í gær. Rútan var að aka yfir teinana og létust allir þeir sem voru í henni en sex manns í lestinni slösuðust. Þetta er annað mannskæðasta slysið í Tyrklandi á nokkrum dögum en á fimmtudag fór hraðlest á leið til Istanbul til Ankara út af sporinu með þeim afleiðingum að þrjátíu og sjö manns létu lífið. Sum lestarvegamót í Tyrklandi eru ekki með rafrænu merkjakerfi og því þurfa ökumenn að kanna sjálfir hvort lest sé á leiðinni áður en þeir aka yfir teinana. Hægt er að sjá myndir af vettvangi úr morgunsjónvarpi Stöðvar 2 með því að smella á hlekkinn hér að neðan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×