Erlent

Stjórnvöld sökuð um morð

Tyrknesk stjórnvöld sæta harðri gagnrýni eftir lestarslys sem kostaði 36 manns lífið í fyrrakvöld. Stjórnin er sökuð um kæruleysi fyrir að hafa ekki tekið mark á viðvörunum um að lestarkerfi landsins, sem er komið til ára sinna, réði ekki við nýju hraðlestina sem fór út af spori sínu á miklum hraða í fyrrakvöld. Tyrknesku blöðin voru harðorð. "Fjöldamorð," "Þau létust fyrir sakir sýndarmennsku," og "Morð," voru fyrirsagnir sem mátti lesa í dagblöðunum í gær. Ekki liggur fyrir hvað olli slysinu en stjórnvöld hafa útilokað skemmdarverk. Nokkrir farþegar höfðu á orði að þeim hefði þótt lestin ferðast á miklum hraða og kváðust sérstaklega hafa orðið þess varir í beygjum. Sérfræðingar höfðu lagt hart að stjórnvöldum að endurnýja lestakerfið. Þeir sögðu að leggja þyrfti ný spor áður en hægt væri að taka hraðlestina í notkun. Ekki var hlustað á það. "Lestakerfi okkar var ekki byggt fyrir svona mikinn hraða. Það var ekkert mark tekið á aðvörunum okkar," sagði verkfræðiprófessorinn Aydin Erel.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×