Náttúruhamfarir víða um heim 18. júlí 2004 00:01
Manntjón hefur orðið í náttúruhamförum víðs vegar um veröldina undanfarna daga. Slökkviliðsmenn hafa barist við skógarelda í Bandaríkjunum, fimmtán hafa látist í flóðum í Japan og að minnsta kosti sex hafa týnt lífi í ofsaveðri í Síberíu. Raflínur hafa gefið sig og tré rifnað upp með rótum í fárviðrinu sem hefur geysað í Síberíu, um 4200 kílómetra austur af Moskvu. Meðalvindhraði hefur mælst 32 metrar á sekúndu. Auk þeirra sex sem létust hafa tugir slasast og íbúar fimmtíu bæja hafa verið án rafmagns síðustu daga. Úrhellisrigning hefur verið í norðurhluta Japans í vikunni líkt og víða annars staðar í Asíu. Að minnsta kosti 15 dauðsföll eru rakin til flóða. Meðalúrkoma frá því á mánudag hefur verið á bilinu 60-70 millimetrar á dag. Ekkert lát er á rigningunum og hafa íbúar á svæðinu verið varaðir við frekari flóðum og aurskriðum. Á annað þúsund slökkviliðsmenn hafa barist við gróðurelda í bandarísku ríkjunum Kaliforníu og Nevada. Í Nevada hafa eldarnir geysað frá því á miðvikudag. Í tvo sólarhinga æddi eldurinn stjórnlaust um svæðið og gjöreyðilagði sextán íbúðarhús, tvö fyrirtæki og á þriðja tug útihúsa. Grunur leikur á að unglingar hafi kveikt í en miklir þurrkar hafa verið í ríkinu að undanförnu. Þá hafa hundruðir íbúa í Kaliforníu flúið heimili sín á meðan slökkviliðsmenn reyna að verja eigur þeirra fyrir eldi sem brunnið hefur glatt í á annan sólarhring. Bálið hefur farið yfir 2000 ekra landsvæði. Myndin er frá flóðunum í Japan.
Erlent Fréttir Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Fleiri fréttir Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Sjá meira