Erlent

Mótmæla málsmeðferð

Mannréttindahópar hafa lýst áhyggjum af því hver verður framgangur réttarhalda yfir írönskum fangaverði sem er sakaður um að hafa myrt íransk-kanadískan ljósmyndara. Friðarverðlaunahafi Nóbels, íranska konan, Shirin Ebadi, gekk út úr réttarsal í Íran í gær til að mótmæla því að ákveðið var að ljúka málflutningi. Dómstóllinn kom þrisvar saman og Ebadi segir að mikilvæg vitni hafi ekki verið boðuð til yfirheyrslu. Ekki er ljóst hvenær dómur fellur í málinu en Ebadi segir að þar sem málsmeðferð hafi ekki verið réttlát sé ekki hægt að búast við að niðurstaðan verði það.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×