Erlent

Rússneskur ritstjóri myrtur

Ritstjóri rússnesks menningartímarits fannst myrtur í miðborg Moskvu, höfuðborgar Rússlands, í gær. Maðurinn, Pail Peloyan að nafni, hafði verið stunginn nokkrum sinnum í brjóstið og bar þess merki að hafa verið sleginn ítrekað í andlitið. Lögreglan í Moskvu telur ekki útilokað að drápið á ritstjóranum tengist starfi hans en hann ritstýrði tímaritinu Armyanski Pereulok fyrir armenska minnihlutann í Rússlandi. Hann er annar ritstjórinn sem er myrtur í borginni í þessum mánuði en Paul Klebnikov var drepinn þann 9. júlí. Myndin er af Moskvuborg.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×