Erlent

Miklir eldar í Nevada

750 slökkviliðsmenn hafa barist við elda í Nevada-ríki í Bandaríkjunum þar sem miklir skógareldar hafa geisað frá því á miðvikudag. Sextán heimili hafa orðið eldinum að bráð, tvö fyrirtæki og á þriðja tug útihúsa. Hundruð manna hafa þurft að flýja heimili sín en slökkviliðið segir mestu hættuna nú vera frá. Grunur leikur á að unglingar hafi kveikt í en miklir þurrkar hafa verið í Nevada undanfarið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×