Erlent

A.m.k. 75 börn dáin í eldsvoða

Að minnsta kosti 75 börn létust í eldsvoða í grunnskóla á Indlandi í dag. 32 börn liggja slösuð á sjúkrahúsi. 300 börn voru í leikskóladeildinni á þriðju hæð skólahússins.  Skólinn er í bænum Kumbakonam í Tamil Nadu héraði á suður Indlandi. Að sögn lögreglu kviknaði eldur í eldhúsi skólans og breiddist hratt út. Meðfylgjandi mynd er af sjónvarpsskjá þar sem indversk sjónvarpsstöð sýnir slökkviliðsmenn að störfum fyrir utan skólann.   



Fleiri fréttir

Sjá meira


×