Erlent

Yfirkennari skólans handtekinn

Yfirkennarinn í grunnskólanum í Kumbakonam á Indlandi, sem brann í morgun, hefur verið handtekinn. AP fréttastofan segir að a.m.k. 80 börn hafi látið lífið í eldsvoðanum og 100 liggi sár á sjúkrahúsi, þar af um 30 sem séu alvarlega slösuð.  Um 200 börn voru í skólahúsinu þegar eldurinn kviknaði í eldhúsi, að því er talið er út frá opinni eldstó. Meðfylgjandi mynd er af rústum skólans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×