Erlent

OPEC-ríkin auka olíuframleiðslu

OPEC-ríkin ætla að auka olíuframleiðslu sína frá og með 1. ágúst. Óvíst var hvort af aukningunni yrði vegna nokkurrar verðhjöðnunar fyrr í mánuðinum en nú segja talsmenn OPEC að 500 þúsund föt verði framleidd aukalega á hverjum degi. Sérfræðingar á olíumörkuðum eru þó ekki vissir um að þetta leiði til verðlækkunar enda er þörfin talin meiri en svo að þessi aukning dugi til. Olíuverð hefur haldist í kringum 41 dollara á fatið í morgun. Meðfylgjandi mynd er frá mótmælum gegn háu olíverði í Suður-Kóreu í síðasta mánuði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×