Erlent

Ekkert framlag er of smátt

"Ekkert framlag er of smátt," sagði Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku, í ákalli sínu til stjórnvalda um heim allan, fyrirtækja og almennra borgara um að láta ríkulega fé af hendi rakna í baráttunni gegn alnæmi í heiminum. Ákall Mandela kom fram á alþjóðlegri ráðstefnu um alnæmisvandann í Bankok í Tælandi. Mandela sagði þó að "ekkert framlag væri of smátt. Í gær tilkynntu Evrópusambandið annars vegar og bandaríski auðkýfingurinn Bill Gates hins vegar um ný framlög upp á andvirði átta milljarða króna til nota í baráttunn við alnæmi. Á ráðstefnunni, sem lýkur í dag, hefur komið fram hörð andstaða við þá stefnu bandarískra stjórnvalda, að leggja meiri áherslu á skírlífi en notkun smokka til að hefta útbreiðslu alnæmis. Bandaríkjamenn hafa á ráðstefnunni lagt meginárherslu á að fyrst í forgangsröðinni eigi að vera skírlífi. þá komi að halda sig við einn maka og þvínæst notkun getnaðarvarna. Fjárframlög Bandaríkjamanna eru að stórum hluta bundinn verkefnum sem miða að skírlílfi. Rúmlega 38 milljónir manna eru smitaðir af HIV-veirunni og af þeim búa 25 milljónir í sunnanverðri Afríku. Þrjá milljónir manna létust af völdum alnæmis í fyrra. Meðferðarúrræði eru aðeins til staðar fyrir 440 þúsund manns í vanþróuðu rikjunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×