Lífslíkur þverrandi í sumum löndum 15. júlí 2004 00:01
Lífslíkur fólks í mörgum ríkjum Afríku eru komnar niður í 33 ár og hafa minnkað til muna vegna alnæmisfaraldursins sem leikur ýmsar þjóðir afar grátt. Þetta eru niðurstöður skýrslu Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna sem kynnt var fyrir skemmstu. Kemur fram að í 20 ríkjum heimsins fara lífsskilyrði stöðugt versnandi meðan þau batna meðal vestrænna ríkja. Meginástæða versnandi lífskjara milljóna manna er talin vera alnæmisveiran en algengt er að þeir sem af henni sýkjast séu í blóma lífsins og á því skeiði sem viðkomandi skilar hvað mestu af sér til þjóðfélagsins. Eru þetta svipaðar niðurstöður og Alþjóðavinnumálastofnunin komst að í ítarlegri skýrslu sinni sem birt var um síðustu helgi. Noregur er það land í heiminum þar sem lífskjör þykja best en slíkt mat er byggt á rannsóknum á lífslíkum, menntunarstigi, heilsugæslu og fleiri slíkum atriðum hjá hverri þjóð fyrir sig. Íslendingar geta vel við unað í sjöunda sæti og eru fyrir ofan stórþjóðir á borð við Bandaríkin, Bretland og Japan. Dæmið snýst alveg við þegar neðstu löndin eru skoðuð. Þar þykir verst að búa í Sierra Leone og Níger, Burkina Faso og Mali eru þar ekki hátt fyrir ofan. Alvarlegast þykir að í einstaka löndum sem hvað harðast hafa orðið úti vegna sjúkdóma á borð við alnæmi, borgarastyrjalda svo ekki sé minnst á matar- og vatnsskort, hafa lífslíkur einstaklinga minnkað til muna. Zambía kemur einna verst út en þar eru lífslíkur aðeins 32.4 ár. Þykir höfundum skýrslunnar ljóst að alnæmisfaraldurinn hafi að miklu leyti þurrkað út þann árangur sem náðst hefur gegnum tíðina með hjálpar- og þróunaraðstoð til handa fátækustu ríkjum Afríku.
Erlent Fréttir Mest lesið Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Innlent Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Innlent Fleiri fréttir Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Sjá meira