Erlent

Kveikt í barni

Lögregla í bænum Minto í Ástralíu leitar nú tveggja stúlkna sem gerðu sér lítið fyrir og kveiktu í níu ára stelpu í almenningsgarði í gær. Engin vitni vissu nákvæmlega hvað átti sér stað en það sást til tveggja stúlkna með grímur hlaupa frá vettavangi. Litla stúlkan liggur þungt haldin á sjúkrahúsi með bruna á 40 prósentum líkamans. Lögregluyfirvöld hafa enga hugmynd um hvað lá að baki árásinni en leit stendur yfir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×