Erlent

James Brown í Höllinni

James Brown heldur tónleika í Laugardalshöll 28. ágúst næstkomandi. Stefán Hjörleifsson, forsvarsmaður tónleikanna, segir að þau hjá fyrirtækinu tonlist.is og erlend umboðsskrifstofa hafi í sameiningu fengið Brown til þess að koma til landsins. "Hann er goðsögn í lifanda lífi og það fer hver að verða síðastur að sjá hann þannig að okkur langaði að kynna hann fyrir Íslendinum," segir Stefán. Tónleikar Browns eru hluti af tónleikaferðinni Seven Decades of Funk og hefur hún hlotið góðar undirtektir í Evrópu og Ameríku. Með honum á sviðinu verða 17 manns; söngvarar, dansarar og hljóðfæraleikarar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×