Erlent

Höfuðlaust lík í Tígris

Höfuðlaust lík í appelsínugulum galla fannst í fljótinu Tígris í Írak í dag. Líkið hefur verið afhent bandaríska heraflanum en ekki hefur verið borið kennsl á það enn. Líklegt er talið að líkið sé af búlgörskum gísl, en myndband með afhöfðun hans var sent arabísku sjónvarpsstöðinni al-Jazeera fyrr í vikunni. Ekkert hefur frést af öðrum búlgörskum gísl sem er í haldi mannræningja en frestur sem þeir gáfu til að fara að kröfum þeirra rann út síðastliðna nótt. Myndbönd erlendra gísla sýna að þeir eru íklæddir appelsínugulum göllum sem svipar til þeirra sem bandarísk fangelsi nota.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×