Erlent

Borgarstjórnarkosningar í Englandi

Borgarstjórnarkosningar verða í tveimur borgum á Englandi í dag og segja stjórnmálaskýrendur að niðurstöður þeirra kosninga sýni betur en nokkuð annað stöðu Tonys Blairs og Verkamannaflokksins, daginn eftir að skýrsla Butlers lávarðar birtist. Í skýrslunni eru gerðar alvarlegar athugasemdir við þær upplýsingar sem lagðar voru til grundvallar í aðdraganda Íraksstríðsins, en Blair þó hreinsaður af sök. Talið er að almenningur láti skoðun sína í ljós í kosningunum í dag, í borgum þar sem Verkamannaflokknum hefur að jafnaði gengið vel. Fyrr í vikunni var óttast að flokkurinn gæti goldið afhroð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×