Erlent

Engin fyrirskipun um brotthvarf

Algjör óvissa ríkir enn um hvort og þá hvenær sveitir Filipseyinga í Írak yfirgefa landið. Mannræningjar sem halda filipseyska gíslinum Angelo de la Cruz hafa hótað að drepa hann hverfi sveitirnar ekki til síns heima fyrir tuttugasta þessa mánaðar. Fjörutíu og þrír hermenn frá Filipseyjum og átta lögreglumenn starfa í Írak, og sagði yfirmaður lögreglusveitarinnar að hún væri enn að störfum. Engin fyrirskipun mun ennþá hafa verið gefin um brotthvarf, þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnvalda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×