Erlent

Sex vikna hámark olíu

Olíuverð náði sex vikna hámarki í gær. Hráolíufatið kostaði 40 dollarar og 97 sent þegar lokað var á markaði í New York í gær. Meginástæðan er sú að olíubirgðir í Bandaríkjunum hafa snarminnkað, auk þess sem áhyggjur af olíuflæði frá Miðausturlöndum virðast ætla að vera viðvarandi. Reyndar er einnig talað um áhyggjur af því að olíuútflutningur frá Rússlandi dragist saman, talið er að OPEC-ríkin geti ekki framleitt meira sem stendur og óöldin í Írak er ennfremur nefnd til sögunnar. Enn aðrir sérfræðingar á olíumarkaði töldu ótta við árásir á olíuhreinsunarstöðvar í Bandaríkjunum ástæðu verðhækkana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×